Lög félagsins
Samþykkt á aðalfundi 26. feb. 1994
Breytt á aðalfundi 13. maí 2006
Breytt á aðalfundi 31. mars 2007
Breytt á aðalfundi 4. maí 2013
1. grein
Félagið heitir Félag skrúðgarðyrkjumeistara. Félagssvæði þess er landið allt.
2. grein
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
3. grein
Tilgangur félagsins er að ná saman öllum starfandi meisturum í skrúðgarðyrkju í skipulagðan félagsskap og gæta hagsmuna þeirra. Auk þess að annast kaup og kjarasamninga vegna meðlima sinna.
4. grein
Rétt til inngöngu í félagið hafa allir skrúðgarðyrkjusveinar. Félag skrúðgarðyrkjumeistara er aðili að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd þeirra atvinnurekenda innan félagsins sem uppfylla skilyrði þessara samtaka um aðild.
5. grein
Félagið skal vinna að því að félagar þess reki alla sína starfsemi á heilbrigðum og faglegum grundvelli. Óheimilt er félagsmanni að ganga í verk eða hluta úr verki sem annar félagsmaður hefur skriflegan samning um eða hafið framkvæmd á, nema til komi fullt samþykki þess er verkið hafði í byrjun og skal slík tilfærsla staðfest af stjórn félagsins.
6. grein
Inntökubeiðnir skulu vera skriflegar og sendast formanni, sem leggur þær fyrir stjórnarfund svo fljótt sem verða má, til staðfestingar.
7. grein
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og sendast formanni og skal hún afgreiðast á sama hátt og inntökubeiðnir.
8. grein
Stjórn félagsins skipa þrír menn: formaður, ritari og gjaldkeri, og tveir varamenn, kosnir til eins árs í senn. Kosið skal sérstaklega um hvert embætti, en varamenn raðast eftir atkvæðamagni. Formaður skal vera sjálfstætt starfandi skrúðgarðyrkjumeistari. Ritari skal annast allar bréfaskriftir og halda gjörðabækur félagsins. Gjaldkeri sér um innheimtu gjalda til félagsins, annast greiðslur fyrir hönd þess og færir reikninga þess. Nánar er kveðið á um starfsemi, réttindi og skyldur í gæðahandbók félagsins. Breytingar á gæðahandbók skulu lagðar fram og samþykktar á aðalfundi.
9. grein
Árgjöld skulu ákveðin á aðalfundi ár hvert og skal stjórnin leggja fram tillögur þar um. Hið sama gildir um inntökugjöld. Gjalddagi árgjalda er á aðalfundi, gjaldkeri félagsins setur nánari reglur um eindaga. Allir félagsmenn skulu vera skuldlausir við félagið um áramót.
10. grein
Félagssjóður stendur straum af almennum rekstrarkostnaði félagsins þó er aðalfundi heimilt að leggja tekjuafgang eða hluta af tekjuafgangi félagsins í sjóð, ef einfaldur meirihluti lögmæts aðalfundar samþykkir tillögu hér um.
11. grein
Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum og fjárreiðum félagsins, og er skylt að ávaxta sjóði þess í banka, sem hefur baktryggingu í Seðlabanka Íslands.
12. grein
Aðalfundur félagsins skal haldin eigi síðar en 30. apríl ár hvert og til hans boðað bréflega með minnst 14 daga fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Til almenns félagsfundar skal boða með tölvupósti eða sms með minnst þriggja daga fyrirvara og er hann þá lögmætur.
Aðra fundi skal halda þegar stjórn félagsins þykir með þurfa samkvæmt fundarályktun eða þegar þess er krafist fyrir hönd minnst 1/3 hluta fullgildra félagsmanna, enda sé jafnframt tilgreint vegna hvers, fundar er krafist.
13. grein
Sérhverjum félagsmanna ber að hlýða lögum og öllum löglega gerðum samþykktum félagsins, enda telst engin fullgildur félagi fyrr en hann hefur með eigin hendi undirritað lög þess og er sú undirritun jafnframt fjárhagslega bindandi gagnvart félaginu. Þá ber hverjum og einum félagsmanni að upplýsa stjórn félagsins ef hann verður þess áskynja að annar félagsmaður brjóti lög og samþykktir félagsins. Félagsfundur skal ákveða hverju sinni viðurlög við lagabrotum.
14. grein
Til breytinga á lögum þessum skal leggja breytingatillögu fyrir aðalfund. Lagabreytingatilögur þurfa að hafa borist stjórn félagsins minnst 20 dögum fyrir aðalfund og skal stjórnin geta þeirra í aðalfundarboði. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Heim
Fréttir
Einstaklingar
Fyrirtæki
Umsókn
Lög félagsins
Sagan
Stjórn
Landbúnaðarháskólinn
Sveinspróf
Meistararéttindi
Nám erlendis
Námskeið
Raunfærnimat
Grassvæði
Hellur/Grjót
Trjágróður
Ýmislegt
Myndir
Heiðursfélagar