Mannvirkjafréttir frá Samtökum iðnaðarins

Opið hús hjá Rafmennt á alþjóðlegum degi rafvirkja
Rafmennt er með opið hús sunnudaginn 10. júní kl. 16.30-18.30.

Vorferð stjórnar MBN á Sauðárkrók
Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi fór nýverið í árlega vorferð stjórnar.

Þættir sem sýna svart á hvítu samdrátt í byggingariðnaði
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um stöðuna í byggingariðnaði.

Framtíð Úrvinnlusjóðs til umræðu á fundi SVÞ, FA og SI
Samtök verslunar og þjónustu, Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins standa fyrir morgunfundi 8. júní kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins.
Félagatal
Ertu með spurningu?
591 0100
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Félagsmenn Félags skrúðgarðyrkjumeistara búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu í landmótun, gerð leiksvæða og öryggi fólks í nærumhverfi.
Hlutverk Félag skrúðgarðyrkjumeistara er að efla fagmennsku, í skrúðgarðyrkju, með áherslu á ábyrg vinnubrögð, fagleg viðmið og gæði í framkvæmd. Þá gætir félagið hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og öðrum hagaðilum og taka virkan þátt í mótun regluverks og ákvarðana sem varða greinina. Félagsmenn hafa umhverfisvernd að leiðarljósi, þar sem loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni og vistvænar lausnir eru í forgrunni. Þá vinnur félagið að því að auka sýnileika skrúðgarðyrkju og mikilvægi hennar fyrir samfélagið, ásamt því að efla samstarf við skyldar fagstéttir, stofnanir og aðra hagaðila.
Stofnað 1967
Félag skrúðgarðyrkjumeistara var stofnað 1967. Félagið var stofnað úr Garðyrkjuverktakafélagi Íslands í samvinnu við Félag garðyrkjumanna. Þessi félög höfðu þá unnið að því í sameiningu að fá skrúðgarðyrkju samþykkta sem lögfesta iðngrein.
Félagsmenn
Skrúðgarðyrkjumeistarar eru ýmist með eigin rekstur eða vinna hjá opinberum aðilum. Rétt til inngöngu í félagið hafa þeir sem lokið hafa meistaraprófi í skrúðgarðyrkju. Árið 2006 var ákveðið að gera sveinum einnig kleift að ganga í félagið og hafa nokkrir nýtt það tækifæri til að taka þátt í starfi félagsins.



