Mannvirkjafréttir frá Samtökum iðnaðarins

SI mótmæla harðlega boðaðri lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu
Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Morgunblaðinu um áhrif hækkunar skatta á íbúðauppbyggingu.

Heimsóknir í fyrirtæki í mannvirkjaiðnaði á Austurlandi
Fulltrúar SI heimsóttu nokkur fyrirtæki í mannvirkjaiðnaði á Austurlandi.

Hætta á að missa af okkar næstu einhyrningum
Rætt er við Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI, í Morgunblaðinu um skattafrádrátt vegna R&Þ.

Gengur of hægt að fá fleiri konur í rafiðnaðarstörf
Rætt er við Ingibjörgu Lilju Þórmundsdóttur um konur í rafiðnaði í Bítinu á Bylgjunni.
Félagatal
Ertu með spurningu?
591 0100
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Félagsmenn Félags skrúðgarðyrkjumeistara búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu í landmótun, gerð leiksvæða og öryggi fólks í nærumhverfi.
Hlutverk Félag skrúðgarðyrkjumeistara er að efla fagmennsku, í skrúðgarðyrkju, með áherslu á ábyrg vinnubrögð, fagleg viðmið og gæði í framkvæmd. Þá gætir félagið hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og öðrum hagaðilum og taka virkan þátt í mótun regluverks og ákvarðana sem varða greinina. Félagsmenn hafa umhverfisvernd að leiðarljósi, þar sem loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni og vistvænar lausnir eru í forgrunni. Þá vinnur félagið að því að auka sýnileika skrúðgarðyrkju og mikilvægi hennar fyrir samfélagið, ásamt því að efla samstarf við skyldar fagstéttir, stofnanir og aðra hagaðila.
Stofnað 1967
Félag skrúðgarðyrkjumeistara var stofnað 1967. Félagið var stofnað úr Garðyrkjuverktakafélagi Íslands í samvinnu við Félag garðyrkjumanna. Þessi félög höfðu þá unnið að því í sameiningu að fá skrúðgarðyrkju samþykkta sem lögfesta iðngrein.
Félagsmenn
Skrúðgarðyrkjumeistarar eru ýmist með eigin rekstur eða vinna hjá opinberum aðilum. Rétt til inngöngu í félagið hafa þeir sem lokið hafa meistaraprófi í skrúðgarðyrkju. Árið 2006 var ákveðið að gera sveinum einnig kleift að ganga í félagið og hafa nokkrir nýtt það tækifæri til að taka þátt í starfi félagsins.



