Nám í skrúðgarðyrkju

Skrúðgarðyrkja er löggilt iðngrein og hefur verið það frá árinu 1967. Nám í skrúðgarðyrkju fer fram í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi en skólinn er nú hluti af Fjölbrautaskóla Suðurlands, FSu. Námið tekur fjórar annir í skólanum og er blanda af bóklegu og verklegu námi, alls 120 einingar. Að auki þurfa nemendur í skrúðgarðyrkju að ljúka 100 eininga vinnustaðanámi (að hámarki 60 vikur) og fer það fram undir handleiðslu skrúðgarðyrkjumeistara. Á meðan á vinnustaðahluta námsins vinna nemendur samkvæmt rafrænni ferilbók. Að afloknu vinnustaðanámi taka nemendur sveinspróf í greininni. 

Skrúðgarðyrkja snýst um að mótun umhverfis og skiptist gróft séð í tvo hluta, gráan hluta og grænan hluta. Í gráa hlutanum læra nemendur um undirbúning, skipulag og framkvæmd landmótunar og yfirborðsfrágangs með forsteyptum einingum, hellum og náttúruefnum. Í græna hlutanum læra nemendur um fjölbreyttan gróður, gras, jurtir og tré og runna, plöntuval,  gróðursetningu og umhirðu. Að auki eru grunnfög sem eru kennd sameiginlega með öðrum garðyrkjubrautum og dýpka þekkingu og skilning nemenda á faggreinum garðyrkjunnar. 

Skrúðgarðyrkjufræðingar vinna sjálfstætt í eigin fyrirtækjum, í skrúðgarðyrkjufyrirtækjum, hjá sveitarfélögum og stofnunum eða halda áfram námi. Margir ljúka iðnmeistararéttindum en nokkuð er um að nemendur fari áfram í háskólanám tengt fagsviðum skrúðgarðyrkjunnar. 

Image