|
Nordland2011 - Samnorrænt verkefni |
|
Félag skrúðgarðyrkjumeistara hefur undanfarna mánuði tekið þátt í samnorrænu verkefni "Nordland2011". Verkefnið felur m.a. í sér námsskrárgerð og námsefnisgerð á sviði skrúðgarðyrkju á norðurlöndunum. 
Helgina 4-7 mars, s.l. var þriðji fundur í verkefninu “Nordland2011″. Þátttakendur frá 4 löndum sóttu fundinn sem haldinn var í Tampere í Finnlandi. Þátttökulöndin eru í dag: Ísland, Finnland, Danmörk og Noregur. Fulltrúar landanna koma ýmist frá menntastofnunum eða landsfélögum skrúðgarðyrkjumeistara. Umræðuefni fundarins var: - Samanburður á stuttum námskeiðum í steinlagna- og umhirðutækni (Ísland, Danmörk, Finnland)
- Kynning á norsku kennsluefni sem stendur til að gefa út á næstu dögum.
- Kynning á íslensku kennsluefni og mögulegu samnorrænni útgáfu kennsluefnis.
- Umfjöllun um færnimarkmið viðkomandi námsskráa og áherslur í viðkomandi löndum.
- Einnig var kynnt ný verknámsaðastaða hjá VERTE í Tampere.
Fundurinn þótti afar vel heppnaðaður og gagnlegur og verða niðurstöður afar gagnlegar í áframhaldandi vinnu við verknámskennslu. Finnland hefur m.a. sett sér það markmið að hefja nám í steinlögnum í samræmi við sameiginlega niðurstöðu landanna varðandi færnimarkmið og einstaka námsáfanga. Lesa má meira um verkefnið á heimasíðu Nordland: http://nordland.is/ Á myndinn sést Þorkell Gunnarsson fara yfir samanburð á Steinlagnatækni og AMU námskeiðum steinlagna í Danmörku. |